Saturday, December 23, 2006

Deildarbikar KSÍ

Þá er búið að skipta niður í riðla fyrir Deildarbikarinn 2007

Það sem er ánægjulegast við þessa niðurröðun er að við erum í þeim riðili sem fær flesta leiki þannig að við eigum að geta spilað nóg.

Við erum í C. deild Karla og erum í riðli A. Riðilinn er eftirfarandi;
1. Ægir
2. Álftanes
3. Árborg
4. GG
5. Hvöt
6. Ýmir

Eins og sjá má þá eru tvö lið sem Ægismenn hafa ekki tekist á við í langan tíma, ef þeir hafa gert það einhvertíman, það eru s.s. Hvöt og Álftanes. En þess má geta að Hvöt fór í úrslitakeppni 3. deildar í fyrra og eru því líklega mjög sterkir.
En flest hin liðin þekkjum við og við vitum að þessir leikir verða ekki auðveldir, en þetta verður góður undirbúningur fyrir komandi season og gott ef menn fara að koma sér í form fyrir þessi átök.

Guðjón kveður.....

Monday, October 16, 2006

Leikmanna vísurnar

Palli Þjálfari:

Páll er enginn kálfur
Hann er okkar íþróttálfur.
Enda er hann ungur,
Og alls’ekki of þungur.
Á miðjunni stendur gleiður,
En aldrei verður hann reiður.
Þótt boltinn skjótist þar hjá,
Því hann mun honum aldrei ná.

Sæli sæti:
Sæli er sætur strákur
En enginn háklassa fákur.
Hann síðast við kvenmann var kenndur,
Þegar hann var fermdur.
Hann á vellinum setur’ann flott,
En aldrei fær hann tott.
Hann reyndi við eina unga,
Sumir segja, frekar þunga.
Hann sparkaði henni fljótt,
Það var frekar ljótt.
Því nú fær hann ekki neitt,
Og því verður aldrei breytt.

Jói grófi:
Jói er maður einn,
Sem er harður eins og steinn.
Mótherjar hans grenja,
Þegar hann er þá að merja.
Hann nær ekki að skora mörkin,
Þótt hann spari ekki karatespörkin.
En hann uppskar nokkur rauð.
Þegar á honum hausinn sauð.

Jón og Gunni:
Jón með sleggjuna stóru,
Tók við af Kela hennar Þóru.
Gunni er stór og mjór,
Minnir á strák í kór.
Þeir spiluðu á miðjunni saman,
Þar fannst þeim ekki gaman.
Þá á kvöldin þeir sóttu í hús,
Þar sem öllum var pakkað í krús.
Þar litu þeir betur út,
En á vellinum í einum hnút.

Ægir 2006
Í byrjun var allt svo gott,
Spilið var svaka flott.
Við töpuðum’ekki leik eftir leik,
En svo fór allt í steik.
Við reynum að þrauka og verjast,
En í staðinn þurftum við að kveljast.
Við getum þó huggað okkur við það,
Margir hugsa nú, hvað?
Þegar við göngum á völlinn,
Þá erum við kyntröllin,
Sem stelpurnar þrá að sjá,
Og í okkur alla að ná
J

Höfundur þessara Vísna, er Guðjón B. Hálfdánarson... en aðstoð fékk hann einnig frá hinum hugmyndamikla Hlyni Kárasyni.

Vonandi njótiði vel....
Lokahófið

Lokahófið fór fram Laugardaginn 16. október í Kiwanis-húsinu í Þorlákshöfn.
Kvöldið byrjaði vel þar sem Ársæll Jónsson og Ari Klængur gáfu leikmönnum Mfl. karla og kvenna bindi að gjöf, svart bindi með ægismerkinu á, fullkomin gjöf til að enda tímabilið.
Eftir þetta var ljúffengur matur að hætti Menam borinn á borð og borðu menn eins og þeir gátu í sig troðið.
Páll Guðmundsson borðaði mann mest og skyldi ekki eftir snitti af veitingunum, eftir það þá valt hann upp í pontuna og fór að tala um tímabilið, það eina sem ég man úr annálnum hans er nafnið ,,Hlynur Kárason" því hann kom ótt og títt við sögu, kannski minnistæðast þegar hann hljóp nakinn yfir völlinn og náði sér í samning, KLÁMMYNDASAMNING hjá einu frægasta klámmyndafyrirtækinu í Hollywood ad mati PÁLS.
Síðan var JÓN REYNIR SVEINSSON útnefndur MAÐUR ÁRSINS, BIRGIR GAUTI var kosinn EFNILEGASTUR og ÁRSÆLL JÓNSSON var markahæstur. Óska ég þeim öllum innilega til hamingju með þessa tiltla.
Eftir þessar útnefningar sem voru eins og fólk sér..... vafasamar...... þá hófust skemmtiatriðin, Bjarni Már sá um þau í fyrra þannig að núna var komin röðin af einhverjum öðrum. Sá sem steig á svið var enginn annar en GUÐJÓN BJARNI HÁLFDÁNARSON og flutti þar nokkrar vel samdar vísur um félaga sína og þjálfara og vakti þetta mikla kátínu í hópnum.
Að þessu loknu var öllu hent til hliðar og slegið upp léttum dansleik, um klukkan 12:30 var síðan pöntuð rúta þar sem meirhluti liðsins ásamt gullfallegum fylgdarmeyjum skelltusér á dansleik með SKÍTAMÓRAL á Hótel Selfossi.
Þess má geta að Ari Klængur var án efa maður kvöldsins þar sem hann dansaði um í ljósbláum neta hlýrabol með hatt og reyndi við allar stelpur sem hann sá... og mér til mikillar undrunar þá náði hann sé ekki í eina stelpu til að fara með heim... heldur 3 :)

Svona var lokahóf Ægismanna sumarið 2006 og vona ég að það verði mun skemmtilegra að ári þar sem við höfum hópin til þess að gera eitthvað skemmtilegt.

með þökk fyrir gott sumar....

Kv. Guðjón B. Hálfdánarson